Ársreikningur Skorradalshrepps 2024 samþykktur

Ársreikningur Skorradalshrepps fyrir árið 2024 var samþykktur af sveitarstjórn þann 21. maí 2025. Niðurstöður ársreikningsins endurspegla trausta rekstrarstöðu sveitarfélagsins og gott sjóðstreymi, sem veitir svigrúm til fjárfestinga án skuldsetningar.

Rekstrarniðurstaða A-hluta nam 36,3 milljónum króna sem er umtalsvert betri niðurstaða en árið 2023. Þegar litið er til samanlagðra reikningsskila A- og B-hluta nam rekstrarniðurstaðan 35,3 milljónum króna, sem er lækkun frá fyrra ári. Rekstrartekjur jukust þó um 14% milli ára, sem styrkir fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins.

Veltufé frá rekstri A-hluta nam 34,3 milljónum króna og 39,6 milljónum króna frá rekstri A- og B-hluta samanlagt. Handbært fé frá rekstri A-hluta var 17 milljónir og 22,5 milljónir frá A- og B-hluta samanlagt. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 3,9 milljónum króna og voru fjármagnaðar án lántöku.

Skuldir og skuldbindingar A-hluta námu 44,2 milljónum króna í árslok og skuldir og skuldbindingar í samanlögðum reikningsskilum A- og B-hluta námu 45,6 milljónum. Eigið fé í lok árs var 122,3 milljónir króna samkvæmt efnahagsreikningi A- og B-hluta, en 102,3 milljónir fyrir A-hluta eingöngu.

Skuldaviðmið samkvæmt reglugerð nr. 502/2012 er ekki reiknað fyrir sveitarfélagið þar sem veltufjármunir eru umfram skuldir og sveitarfélagið því í raun skuldlaust.

Ársreikningur Skorradalshrepps 2024