Já, sveitarstjórnir Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hafa tekið ákvörðun um að hefja formlegar viðræður og skipað samstarfsnefnd um sameiningu. Í því felst skuldbinding til að gefa íbúum færi á að kjósa um sameiningartillögu. Kosningarnar munu fara fram á tímabilinu 5.-20. september 2025.
Sveitarstjórnirnar hafa ákveðið að kosið verði á tímabilinu 5. september til 20. september 2025.
Leitað hefur verið eftir sjónarmiðum íbúa á íbúafundum sem haldnir hafa verið í tengslum við sameiningarviðræður sveitarfélaganna og svör íbúa hafa verið höfð til hliðsjónar við mótun tillögu og framtíðarsýnar.
Kosningarnar fara fram á tveggja vikna tímabili frá 5. september til 20. september 2025. Hægt verður að greiða atkvæði á tilgreindum kjörstöðum í hvoru sveitarfélagi á opnunartíma eða með því að senda atkvæði til kjörstjórnar. Kjósandi óskar þá eftir því við kjörstjórn að fá kjörgögn send til sín á það heimilisfang eða það netfang sem hann gefur upp. Heimilt er að bjóða kjósendum að greiða atkvæði á hreyfanlegum kjörstað og skal þá auglýst hvar kjörstaður er á hverjum tíma.
Íslenskir, danskir, finnskir, sænskir og norskir ríkisborgarar sem náð hafa 16 ára aldri á lokadegi atkvæðagreiðslunnar og eiga skráð lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi á hádegi 22 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst eiga kosningarétt í íbúakosningum um sameiningu. Hið sama gildir um aðra erlenda ríkisborgarar, sem hafa átt skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir lokadag atkvæðagreiðslu, og eru skráðir í viðkomandi sveitarfélagi.