Þann 5. mars sl. staðfesti innviðaráðuneyti sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í eitt sveitarfélag skv. 124. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Staðfestingin var auglýst í Stjórnartíðindum þann 23. mars sl. Í auglýsingunni kemur fram að Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, nr. 1213/2022, mun gilda fyrir hið sameinaða sveitarfélag þar til því hefur verið sett ný samþykkt og að heiti hins sameinaða sveitarfélags verður auglýst sérstaklega.
Einnig kemur fram að kjósa skuli níu fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags við almennar sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 16. maí 2026. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn hins sameinaða sveitarfélags hinn 31. maí 2026 og á sama tíma tekur sameiningin gildi.
Íbúar samþykktu sameininguna í íbúakosningunum sem fram fóru dagana 5.-20. september 2025, en tafir urðu á staðfestingu hennar þar sem framkvæmd kosninganna var kærð til Innviðaráðuneytis. Ráðuneytið komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að verða við kröfum kærenda um ógildingu kosninganna.
