Samstarfsnefnd skilar áliti

Samstarfsnefnd um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hefur skilað af sér áliti til sveitarstjórna sveitarfélaganna, sem hafa tekið þær til umræðu skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga. Niðurstaða samstarfsnefndar er að sameining muni hafa fleiri kosti í för með sér en ókosti fyrir íbúa og að henni fylgi tækifæri sem annars stæðu sveitarfélögunum ekki til boða.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar og hreppsnefnd Skorradalshrepps hafa jafnframt samþykkt tillögu samstarfsnefndar um að kosningar skuli fara fram frá 5. september til 20. september næstkomandi og að kosningaaldur skuli miðast við 16 ár. Íbúar sveitarfélaganna tveggja sem náð hafa 16 ára aldri þann 20 september fá því að kjósa um sameiningartillöguna.

Erindi samstarfsnefndar til sveitarstjórna og fylgigögn:

Hlekkir á fundargerðir sveitarstjórna: