Ársreikningur Borgarbyggðar 2024 samþykktur

Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2024 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar þann 8. maí sl. Ársreikningurinn endurspeglar sterka fjárhagsstöðu og góða fjárfestingargetu sveitarfélagsins.

Afgangur af rekstri A-hluta var 319 m.kr. sem er nokkru lægra en árið 2023, en afgangur af samanlögð reikningsskilum A- og B-hluta var 440 m.kr. sem er um 55 m.kr. hærri en árið á undan. Rekstrartekjur A- og B-hluta jukust um 10% milli ára.

Veltufé frá rekstri A-hluta var 668 m.kr. og handbært fé frá rekstri 728 m.kr. Veltufé frá rekstri A- og B-hluta var 892 m.kr. og handbært fé frá rekstri var 992 m.kr.

Fjárfestingar ársins í varanlegum rekstrarfjármunum að fjárhæð 1.018 m.kr. voru fjármagnaðar án lántöku. Skuldir og skuldbindingar A-hluta í árslok námu 3,9 ma.kr. og samstæðu 5,8 ma. kr.

Skuldaviðmið skv. fjárhagslegu viðmiði sveitarstjórnarlaga var 35% fyrir A- og B-hluta sem endurspeglar hagstæða skuldastöðu og gott svigrúm sveitarfélagsins til fjárfestinga, en hámark skuldaviðmiðs er 150%.