Hjálmaklettur í Borgarnesi

Íbúafundur um tillögu um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps

Miðvikudaginn 27. ágúst nk. kl. 20:00 verður haldinn íbúafundur um tillögu um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í Hjálmakletti í Borgarnesi.

Á fundinum verður kynnt álit samstarfsnefndar og forsendur hennar, auk þess sem farið verður yfir fyrirkomulag kosninga um tillöguna sem fram fara 5.-20. september.

Kynningunni verður streymt á internetinu. Hlekkur á streymið verður birtur á upplýsingasíðu samstarfsnefndar, borgfirdingar.is eftir hádegi á fundardag.

 

Smellið hér til að tengjast fundinum.